Lyrics

Ævinlega,
sé að þið rákust
á tryggan ráðsmann minn.

Hann er svo styggur þessi gikkur
því í staðinn fyrir ykkur
vildi hann hitta stuðmanninn.

Lyrics continue below...

Don't want to see ads? Upgrade Now

Hlaupið ekki í hnút,
þótt ég líti svona út,
bókin er oft betri en spjöldin.

Mín karlmennska dvín,
meðan dagsljósið skín,
en ég er þrælgóður elskhugi á kvöldin.

Ég er töff og taumlaus transi,
frá kynfráu
Transylvaníu.

Leyf mér að bjóða ykkur inn
og kannski tónlist um sinn.
Þið virðist bæði geðþekk og glaðlynd.

Nú ef þið viljið það sjónrænt
en ekki of siðrænt.
Gætum við litið á gamla Steve Reeves mynd.

Það var gott að hitta á þig hér.
Gætum við fengið að hringja hjá þér?
Í skyndi ef þér væri sama.
Það verður örstutt,
svo förum við burt,
við viljum síst verða til ama.

Svo dekkið þitt sprakk
og þú átt engan tjakk
en greyin mín, ekki þennan flýti.
Því gott miðnæturblót
er meinanna bót
og ég sendi ykkur vélsmið úr víti.

Ég er töff og taumlaus transi,
frá kynfráu
Transylvaníu.

Þið gætuð gist hér í nótt
og gert eitthvað ljótt
og séð þráhyggjuverk mitt í þróun.

Ég er að búa til karlmann,
bæði stóran og stæltan,
sem kynni að vera mér fróun.

Ég er töff og þröngur transi,
frá kynfráu
Transylvaníu.

Ég er töff og taumlaus transi,
frá kynfráu
Transylvaníu.

Sjáum hvað tilraunastofan
geymir hér fyrir ofan.
Þennan tilhlökkunartitring ég þekki.
Nema rigning og rok
séu svona þungbært ok,
þá afnem ég okið en einkennin ekki.

Writer(s): Richard O'brien

Don't want to see ads? Upgrade Now

API Calls

Scrobble from Spotify?

Connect your Spotify account to your Last.fm account and scrobble everything you listen to, from any Spotify app on any device or platform.

Connect to Spotify

Dismiss