Rjóminn

Join Share

6 members| Add shout

Leader: samueljon
Join Policy: Member Approval
Created on: 23 Apr 2007
Description:
Rjómanum, vefriti um tónlist og tilheyrandi, var hleypt af stokkunum þann 19. október árið 2005. Að honum stendur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á tónlist og flestu því...

Nafnið, Rjóminn, vísar til þess feitasta, þess sem flýtur ofan á, þess allra besta. Það þýðir þó ekki að Rjóminn taki einungis til umfjöllunar allra bestu tónlistina. Þvert á móti þá er Rjóminn óvæginn í gagnrýni sinni og hikar ekki við að skrifa niðurrifsspistla þar sem þeir eiga við. Engin tónlist er of ,,mainstream" fyrir Rjómann og engar tónlistarstefnur honum óviðkomandi þó áhugasvið fastapenna móti að sjálfsögðu umgjörðina að miklu leyti.

Rjóminn birtir daglega plöturýni auk þess að birta einnig ítarlegar umfjallanir um tónleika, viðtöl við tónlistarmenn og hljómsveitir, tóntengda pistla og annars konar efni. Markmið okkar er að veita lesendum innsýn í margræðan og síbreytilegan heim tónlistarinnar og leiðbeina þannig áhugasömum gegnum sífellt þéttari frumskóg nútímatónlistar.

Weekly Top Artists

Shoutbox

Leave a comment. Log in to Last.fm or sign up (it’s free).
Rjóminn’s Group Radio

Newest Members (6)